HK-ingurinn Valgeir Valgeirsson gaf stoðsendingu annan leikinn í röð með Örebro er liðið vann Sundsvall, 3-1, í sænsku B-deildinni í dag.
Valgeir lagði upp eina mark liðsins í 1-1 jafnteflinu gegn Trelleborg í síðustu umferð og hélt hann áfram á sömu braut í dag er hann lagði upp annað mark liðsins í 3-1 sigri á Sundsvall.
Markið sem hann lagði upp var gríðarlega mikilvægt. Staðan var 1-1 þegar hann gaf stoðsendingu á Peter Gwargis sem kom Örebro yfir áður en Kalle Holmberg gerði út um leikinn í uppbótartíma.
Þriðja stoðsending Valgeirs á tímabilinu en hann og félagar hans í Örebro eru í 10. sæti B-deildarinnar með 16 stig eftir fjórtán leiki.
Athugasemdir