Marcos Alonso hefur yfirgefið Barcelona eftir að samningur hans við félagið rann út.
Alonso gekk til liðs við félagið árið 2022 frá Chelsea og lék 45 leiki og skoraði þrjú mörk.
Þá mun Barcelona ekki kaupa nafnana Joao Felix og Joao Cancelo og munu þeir því snúa aftur til sinna félaga eftir lánssamning hjá Barcelona.
Cancelo gekk til liðs við Barcelona frá Man City á láni síðasta sumar, hann var fastamaður í liðinu en hann leysti bæði hægri og vinstri bakvörð. Joao Felix mætti til Barcelona sama dag og Cancelo á láni frá Atletico Madrid. Hann lék 44 leiki og skoraði 10 mörk.
Athugasemdir