England og Slóvakía eigast við í 16-liða úrslitum á EM í dag. Byrjunarliðin eru komin í hús.
Kobbie Mainoo leikmaður Man Utd er í byrjunarliði Englands en hann kemur inn í liðið fyrir Conor Gallagher frá markalausu jafntefli gegn Slóveníu.
Phil Foden er mættur aftur til Þýskalands eftir að hafa skroppið heim þar sem hann var að eignast sitt þriðja barn. Hann er í byrjunarliðinu í dag.
Slóvakía er lítið að breyta út af vananum og hefur keyrt mótið á nánast sama liðinu. Engin breyting er frá síðasta leik.
England: Pickford; Walker, Stones, Guehi, Trippier; Rice, Mainoo, Bellingham; Saka, Kane, Foden.
Slovakia: Dubravka, Pekarik, Vavro, Skriniar, Hancko, Kucka, Lobotka, Duda, Schranz, Strelec, Haraslin.
Athugasemdir