Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   lau 29. október 2022 12:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið ÍBV og Leiknis: Andri Rúnar ekki í hóp - Þrjár breytingar hjá Leikni
Arnar Breki kemur inn í byrjunarlið ÍBV.
Arnar Breki kemur inn í byrjunarlið ÍBV.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sindri byrjar hjá Leikni
Sindri byrjar hjá Leikni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 13:00 hefst lokaumferðin í Bestu deildinni og er hægt að nálgast textalýsingar frá öllum leikjum á forsíðu Fótbolta.net. Í neðri hlutanum mætast ÍBV og Leiknir á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum.

Leiknir er í botnsætinu fyrir lokaumferðina og er fallinn niður í Lengjudeildina. Með sigri getur liðið komist upp fyrir ÍA í 11. sætinu. ÍBV er í 9. sætinu og getur með sigri komist upp í 8. sætið.

Lestu um leikinn: ÍBV 1 -  0 Leiknir R.

Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV, gerir eina breytingu frá tapinu gegn Fram í síðustu umferð. Atli Hrafn Andrason tekur sér sæti á bekknum og inn í liðið kemur Arnar Breki Gunnarsson. Andri Rúnar Bjarnason er ekki í leikmannahópi liðsins.

Sigurður Heiðar Höskuldsson, í sínum lokaleik sem þjálfari Leiknis, gerir þrjár breytingar frá síðustu umferð. Daði Bærings Halldórsson og Davíð Júlían Jónsson taka sér sæti á bekknum og þá er Gyrðir Hrafn Guðbrandsson ekki í hóp. Inn í liðið koma þeir Róbert Hauksson, Dagur Austmann og Sindri Björnsson.

Byrjunarlið ÍBV:
1. Jón Kristinn Elíasson (m)
0. Halldór Jón Sigurður Þórðarson
2. Sigurður Arnar Magnússon
3. Felix Örn Friðriksson
5. Jón Ingason (f)
7. Guðjón Ernir Hrafnkelsson
8. Telmo Castanheira
14. Arnar Breki Gunnarsson
23. Eiður Aron Sigurbjörnsson
25. Alex Freyr Hilmarsson
42. Elvis Bwomono

Byrjunarlið Leiknir R.:
1. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
4. Bjarki Aðalsteinsson (f)
7. Adam Örn Arnarson
8. Sindri Björnsson
9. Róbert Hauksson
11. Brynjar Hlöðvers
18. Emil Berger
20. Hjalti Sigurðsson
23. Dagur Austmann
28. Zean Dalügge
80. Mikkel Jakobsen
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner