Thiago Alcantara mætir aftur á miðsvæðið hjá Liverpool í kvöld er liðið tekur á móti Leeds United á Anfield í ensku úrvalsdeildinni en leikurinn hefst klukkan 18:45.
Spænski leikmaðurinn hefur verið að glíma við sýkingu í eyra og því misst af síðustu leikjum liðsins en hann er nú laus við sýkinguna og klár í slaginn.
Jordan Henderson kemur á bekkinn. Darwin Nunez, Mohamed Salah og Roberto Firmino byrja allir. Joe Gomez heldur sæti sínu í vörninni en Ibrahima Konate er á bekknum.
Liverpool: Becker, Alexander-Arnold, van Dijk(c), Robertson, Gomez, Fabinho, Thiago, Roberto Firmino, Elliott, Salah, Núñez
Varamenn: Henderson, Jones, Fábio Carvalho, Kelleher, Oxlade-Chamberlain, Konaté, Tsimikas, Milner, Phillips.
Leeds: Meslier, Kristensen, Struijk, Koch, Cooper(c), Harrison, Aaronson, Adams, Roca, Summerville, Rodrigo
Varamenn: Ayling, Gelhardt, Firpo, Llorente, Greenwood, Robles, Gnonto, Klich, Bamford.
Athugasemdir