Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 29. október 2022 21:50
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir Liverpool og Leeds: Franski markvörðurinn bestur - Gomez fær 4
Ilian Meslier var frábær í rammanum hjá Leeds í kvöld
Ilian Meslier var frábær í rammanum hjá Leeds í kvöld
Mynd: EPA
Ilian Meslier, markvörður Leeds United, var besti maður vallarins er liðið lagði Liverpool, 2-1, á Anfield. Það er Sky Sports sem gefur leikmönnum einkunnir eftir leik.

Joe Gomez, varnarmaður Liverpool, fær 4 fyrir sitt framlag en hann átti mistökin í fyrsta markinu. Virgil van Dijk fær 5.

Andy Robertson og Mohamed Salah voru bestu menn LIverpool með 7.

Meslier, markvörður Leeds, varði nokkrum sinnum frábærlega fyrir Leeds og fær hann 9 fyrir frammistöðuna. Sky Sports valdi hann besta mann leiksins.

Liverpool: Alisson (6), Alexander-Arnold (6), Gomez (4), Van Dijk (5), Robertson (7), Fabinho (5), Thiago (6), Elliott (5), Salah (7), Firmino (6), Nunez (6).
Varamenn: Henderson (6), Jones (5), Milner (6).

Leeds: Meslier (9), Kristensen (7), Koch (7), Cooper (7), Struijk (7), Roca (7), Adams (8), Harrison (6), Aaronson (7), Summerville (8), Rodrigo (8).

Subs: Bamford (6), Gnonto (7).
Athugasemdir
banner
banner
banner