Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 29. október 2022 16:18
Ívan Guðjón Baldursson
Kaupmannahöfn sótti sigur til Randers - Albert kom við sögu gegn Brescia
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Mynd: Dortmund
Mynd: Honved

Hákon Arnar Haraldsson var í byrjunarliði FC Kaupmannahafnar sem lagði Randers FC að velli í efstu deild danska boltans í dag.


Hákon Arnar spilaði fyrri hálfleikinn og var svo skipt út í stöðunni 0-0 fyrir hinn hávaxna Andreas Cornelius, fyrrum leikmann Cardiff, Atalanta og Trabzonspor. 

Lukas Lerager og Mohamed Daramy afgreiddu Randers í síðari hálfleik þar sem þeir lögðu upp mörk fyrir hvorn annan í 0-2 sigri. Ísak Bergmann Jóhannesson kom inn af bekknum á lokakafla leiksins og var Orri Steinn Óskarsson ónotaður varamaður.

Kaupmannahöfn er með 21 stig eftir 15 umferðir, tíu stigum á eftir toppliði Nordsjælland.

Randers 0 - 2 FC Kaupmannahöfn

Albert Guðmundsson fékk að spila síðustu 10 mínúturnar í 1-1 jafntefli Genoa gegn Brescia í Serie B á Ítalíu en þar er Genoa í öðru sæti, með 22 stig eftir 11 umferðir.

Jón Daði Böðvarsson kom einnig inn af bekknum er Bolton átti heimaleik gegn Oxford United en tapaði. Jón Daði fékk síðasta hálftímann en hann kom inn í stöðunni 0-2 og urðu lokatölur 1-3.

Óttar Magnús Karlsson lék þá allan leikinn en tókst ekki að skora er Oakland Roots var slegið úr úrslitakeppninni í næstefstu deild bandaríska boltans.

Oakland steinlá gegn San Antonio þó að leikurinn sjálfur hafi verið þokkalega jafn. Óttari tókst ekki að nýta færin sín nógu vel eftir að hafa verið iðinn við markaskorun á deildartímabilinu.

Kolbeinn Birgir Finnsson lék í varnarlínunni hjá varaliði Borussia Dortmund í sigri í C-deild þýska boltans. Þar er Dortmund búið að sigra þrjá leiki í röð og er með 18 stig eftir 14 umferðir.

Í Ungverjalandi byrjaði Viðar Ari Jónsson í tapleik Honved gegn MOL Fehervar. Viðar Ari spilaði fyrstu 60 mínúturnar og er Honved með 13 stig eftir 13 umferðir, einu stigi fyrir ofan fallsvæðið.

Genoa 1 - 1 Brescia

Bolton 1 - 3 Oxford Utd

San Antonio 3 - 0 Oakland Roots

Dortmund II 1 - 0 Verl

Honved 0 - 1 MOL Fehervar


Athugasemdir
banner
banner