Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   lau 29. október 2022 17:46
Brynjar Ingi Erluson
Mbappe, Messi og Neymar allir á skotskónum í sigri PSG
Mynd: EPA
Kylian Mbappe, Lionel Messi og Neymar komust allir á blað er Paris Saint-Germain vann nauman, 4-3, sigur á Troyes í frönsku fyrstu deildinni í dag.

PSG lenti óvænt undir á Parc des Princes-leikvanginum en það tók PSG ekki langan tíma að jafna metin.

Spænski miðjumaðurinn Carlos Soler skoraði þá eftir sendingu frá Neymar. Staðan í hálfleik var 1-1, en sá síðari byrjaði eins og fyrri, með marki frá Troyes.

Heimamenn jöfnuðu aftur og að þessu sinni skoraði Messi með stórkostlegu skoti vel fyrir utan teig og alveg upp við stöng. Sjö mínútum síðar lagði Messi upp þriðja mark PSG fyrir Neymar áður en Mbappe skoraði fjórða úr vítaspyrnu.

PSG er á toppnum með 35 stig eftir þrettán leiki.


Athugasemdir
banner
banner
banner