Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 29. október 2022 16:37
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu atvikið: Diego Costa fékk beint rautt gegn Brentford
Diego og Úlfarnir.
Diego og Úlfarnir.
Mynd: Getty Images

Sóknarmaðurinn Diego Costa skrifaði undir samning við Wolves í haust og kom inn af bekknum í 1-1 jafntefli gegn Brentford í dag.


Costa er þekktur fyrir að vera erfiður viðureignar vegna mikils líkamsstyrks auk þess að vera mikið í því að atast í og pirra andstæðinga sína.

Í uppbótartímanum gegn Brentford var Costa í stöðubaráttu við varnarmann Brentford sem rakst með hausinn í haus Costa.

Costa brást ekki vel við því og ákvað að skalla varnarmanninn á móti. Þetta náðu þeir að sjá í VARsjánni og fékk Costa að líta beint rautt spjald og verður í leikbanni næstu þrjá leiki.

Sjáðu atvikið


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner