Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   lau 29. október 2022 13:11
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu frábært aukaspyrnumark De Bruyne
Mynd: Getty Images

Englandsmeistarar Manchester City eru einu marki yfir á útivelli gegn Leicester þessa stundina en heimamenn eru að veita þeim alvöru baráttu á lokakaflanum.


Man City er aðeins einu marki yfir þrátt fyrir yfirburði og hafa heimamenn í Leicester sýnt að þeir geta verið stórhættulegir.

Leicester byrjaði tímabilið illa en er búið að vinna tvo leiki í röð og virðast leikmenn liðsins staðráðnir í að tapa ekki þessum leik í dag.

Kevin De Bruyne skoraði eina mark leiksins hingað til beint úr aukaspyrnu og er markið stórbrotið.

Leikurinn er í beinni útsendingu á sportstöð Símans.

Sjáðu markið


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner