Klukkan 16:15 verður flautað til leiks á Old Trafford en þar mætast Manchester United og West Ham í ensku úrvalsdeildinni.
Erik ten Hag, stjóri Manchester United, hefur gert þrjár breytingar á byrjunarliðinu sínu og kom það mörgum á óvart að sjá að Brasilíumaðurinn Antony er ekki í leikmannahópnum í dag.
Hann fékk högg á æfingu og verður því ekki með í dag en ekki er talið að hann verði lengi frá keppni.
Svíinn Victor Lindelöf var í byrjunarliðinu gegn Sheriff í miðri viku og þá kom hann inn á gegn Chelsea fyrir meiddan Raphael Varane. Lindelöf er veikur og er því ekki með í dag en Harry Maguire er mættur aftur.
Þá kemur Anthony Elanga inn í liðið ásamt Cristiano Ronaldo en Jadon Sancho hefur misst sæti sitt í byrjunarliðinu.
Athugasemdir