Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 30. október 2022 17:31
Brynjar Ingi Erluson
Hundraðasta mark Rashford fyrir Man Utd
Mynd: EPA
Marcus Rashford, framherji Manchester United, skoraði í dag sitt 100. mark fyrir félagið í öllum keppnum er hann kom liðinu yfir gegn West Ham á Old Trafford.

Rashford, sem er uppalinn hjá United, hefur spilað með aðalliðinu frá 2015-2016.

Louis van Gaal gaf honum þá tækifærið í Evrópudeildinni gegn Midtjylland og sá byrjaði vel. Hann skoraði átta mörk á fyrsta tímabili sínu og í dag fagnaði hann sérstökum áfanga.

Hann skoraði 100. mark sitt fyrir félagið og er 22. leikmaðurinn til að afreka það. Síðasti leikmaðurinn til að afreka þetta var Wayne Rooney en hann gerði 100. mark sitt árið 2009.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner