Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 30. október 2022 14:45
Aksentije Milisic
Myndband: Martinelli skallaði Arsenal í forystu
Mynd: EPA

Þessa stundina eigast við Arsenal og Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni en þegar þetta er skrifað eru heimamenn einu marki yfir. 


Það tók Arsenal aðeins fimm mínútur að komast í forystu en þá skoraði Brasilíumaðurinn Gabriel Martinelli eftir góða fyrirgjöf frá Bukayo Saka.

Saka fann kollinn á Martinelli með fyrirgjöf frá hægri og stýrði Brassinn skallanum laglega í netið framhjá Dean Henderson.

Stuttu síðar meiddist Saka og haltraði hann lengi á vellinum áður en honum var skipt útaf. Reiss Nelson kom inn í hans stað.

Markið sem Martinelli skoraði má sjá hérna.


Athugasemdir
banner
banner