Harry Maguire og David De Gea, leikmenn Manchester United, áttu stóran þátt í 1-0 sigri liðsins á West Ham í kvöld en þeir komu liðinu svo sannarlega til bjargar á lokamínútunum.
Jarrod Bowen var í kjörstöðu til að jafna fyrir West Ham seint í leiknum en Maguire komst fyrir skotið áður en Diogo Dalot hreinsaði frá.
De Gea varði þá oft á tíðum mjög vel og þurfti hann að taka á stóra sínum undir lokin er Declan Rice lét vaða af löngu færi en De Gea kastaði sér á skotið og varði meistaralega.
Hægt er að sjá atvikin hér fyrir neðan.
Sjáðu atvikin hér
Athugasemdir