Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 30. október 2022 13:45
Aksentije Milisic
Sjáðu frábært mark Bjarna með hjólhestaspyrnu
Mynd: Christer Thorell

Bjarni Mark Antonsson, leikmaður Start í Noregi, skoraði glæsilegt mark með hjólhestaspyrnu í gær þegar Start vann 2-1 sigur á Ranheim í norsku B-deildinni.


Start endar í þriðja sæti deildarinnar og fer í umspil um sæti í deild þeirra bestu í Noregi.

Start komst í forystu eftir um þrjátíu mínútna leik en þar var Bjarni á ferðinni með frábærri hjólhestaspyrnu sem komi í kjölfar hornspyrnu.

Myndbandið af markinu má sjá hér fyrir neðan en Start setti það inn á Instagram síðu sinni.


Athugasemdir
banner
banner
banner