Hinn 16 ára gamli Lamine Yamal hefur átt frábært Evrópumót til þessa en hann lagði upp annað mark sitt í mótinu í 4-1 sigri Spánverja á Georgíu í gær.
Yamal er einn allra efnilegasti fótboltamaður heims um þessar mundir.
Hann var mikið inn í leiknum gegn Georgíu í gær og kom sér frábærar stöður til að skora.
Heppnin var ekki með honum fyrir framan markið en honum tókst þó að leggja upp annað mark Spánverja á Fabian Ruiz.
Yamal er nú kominn með tvær stoðsendingar á sínu fyrsta Evrópumóti og kom sér þannig í hóp með portúgölsku stjörnunni Cristiano Ronaldo.
Hann varð aðeins annar táningurinn til þess að leggja upp tvö mörk á fyrsta Evrópumóti sínu á eftir Ronaldo sem náði þessum áfanga árið 2004.
Þá kom hann sér einnig í hóp með Zinedine Zidane en hann var annar til þess að eiga fleiri en fimm skot og skapa fleiri en fimm færi í einum leik á mótinu. Yamal átti sjö skot og skapaði sex færi fyrir liðsfélaga sína.
Yamal hefur verið ómissandi með Barcelona og spænska landsliðinu síðasta árið og komið að 17 mörkum.
Athugasemdir