Liverpool hefur sett sig í samband við fólk sem er nátengt Alexander Isak - Úlfarnir horfa til Jota
   sun 09. október 2022 09:51
Elvar Geir Magnússon
Í BEINNI - 10:00 Dregið í undankeppni EM
Hvaða riðil fær Ísland?
Hvaða riðil fær Ísland?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari.
Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það verður dregið í riðla fyrir undankeppni EM í Frankfurt núna á eftir. Athöfnin hefst klukkan 10 að íslenskum tíma.

Lokakeppnin fer svo fram í Þýskalandi sumarið 2024 og vonandi verður Ísland með þar.

Fylgst er með drættinum í beinni á vefsíðu UEFA

Hér að neðan má sjá styrkleikaflokkana fyrir dráttinn. Það er árangur í Þjóðadeildinni sem ræður því hvernig liðunum er raðað niður fyrir undankeppnina. Ísland er í þriðja styrkleikaflokki.

Undankeppnin verður spiluð frá mars til nóvember á næsta ári en Þýskaland tekur ekki þátt enda fær liðið sjálfkrafa þátttökurétt sem gestgjafi.

Liðin fjögur sem verða í úrslitakeppni Þjóðadeildarinnar verða í fimm liða riðlum til að búa til svigrúm til að úrslitakeppnin verður spiluð.

Þjóðadeildarpotturinn
Holland
Króatía
Spánn
Ítalía

Pottur eitt:
Danmörk
Portúgal
Belgía
Ungverjaland
Sviss
Pólland

Pottur tvö:
Frakkland
Austurríki
Tékkland
England
Wales
Ísrael
Bosnía og Hersegóvína
Serbía
Skotland
Finnland

Pottur þrjú:
Úkraína
Ísland
Noregur
Slóvenía
Írland
Albanía
Svartfjallaland
Rúmenía
Svíþjóð
Armenía

Pottur fjögur:
Georgía
Grikkland
Tyrkland
Kasakstan
Lúxemborg
Aserbaídsjan
Kosóvó
Búlgaría
Færeyjar
Norður-Makedína

Pottur fimm:
Slóvakía
Norður-Írland
Kýpur
Hvíta-Rússland
Litháen
Gíbraltar
Eistland
Lettland
Moldóva
Malta

Pottur sex:
Andorra
San Marínó
Liechtenstein

Athugasemdir
banner
banner
banner