Atletico íhugar að gera tilboð í Garnacho - Man Utd langt komið í viðræðum við Diallo - Dybala má fara ef hann er ósáttur
   mið 18. desember 2024 10:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Yfirlýsing FH: Stutt í samkomulag og aðkoma bræðranna eðlileg
Fyrir leik hjá FH.
Fyrir leik hjá FH.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Inn í Skessunni.
Inn í Skessunni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bræðurnir Jón Rúnar og Viðar Halldórssynir hafa lengi sinnt störfum fyrir FH.
Bræðurnir Jón Rúnar og Viðar Halldórssynir hafa lengi sinnt störfum fyrir FH.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hérna sést í Skessuna.
Hérna sést í Skessuna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd tekin inn í Skessunni.
Mynd tekin inn í Skessunni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þegar fyrsta skóflustungan var tekin að Skessunni.
Þegar fyrsta skóflustungan var tekin að Skessunni.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
FH sendi í gærkvöldi frá sér yfirlýsingu í kjölfarið á fréttaflutningi um bréf sem Hafnarfjarðarbær sendi félaginu. Bréfið tengist kostnaði við byggingu Skessunnar, knatthúss FH, sem vígt var síðla árs 2019.

Í bréfinu óskar Hafnarfjarðarbær eftir svörum við 18 spurningaliðum í kjölfarið á skýrslu sem ráðgjafafyrirtækið Deloitte gerði. Þetta gerir bærinn þar sem nú standa yfir viðræður um kaup Hafnarfjarðarbæs á Skessunni vegna bágrar fjárhagsstöðu FH.

Þetta eru alls 18 spurningar sem bærinn vill fá frekari svör við um framkvæmd Skessunnar og kostnaðinn við hana, og skiptist hver spurning í nokkra liði.

FH hefur nú gefið út yfirlýsingu vegna þessarar skýrslu Deloitte fyrir Hafnarfjarðarbæ um fjármögnun, byggingu og rekstur knatthússins Skessunnar.

Nánar er hægt að lesa um málið með því að smella á tengilinn hér fyrir ofan.

Svona er yfirlýsingin frá FH
Stutt í samkomulag FH og Hafnarfjarðarbæjar
Fulltrúar Fimleikafélags Hafnarfjarðar (FH) og Hafnarfjarðarbæjar vinna nú að því að ná samkomulagi um að sveitarfélagið kaupi eignarhlut FH í knatthúsinu Skessunni. Þar með mun sveitarfélagið eignast megnið af mannvirkjum FH í Kaplakrika rétt eins og það á nær öll önnur íþróttamannvirki í bænum, til dæmis íþróttamannvirki Hauka. Ástæða kaupanna er nauðsynleg endurfjármögnun Skessunnar, sem var vígð 2019, þar sem þungur rekstur FH undanfarin ár stendur ekki undir vaxtabyrði og öðrum fjármagnskostnaði við bygginguna. Samningaviðræðurnar hafa staðið yfir með hléum síðan 2023, en FH býst við jákvæðri niðurstöðu á næstu dögum eða vikum.

Mikilvægur áfangi fyrir sjálfbært íþróttafélag
Náist samkomulag við Hafnarfjarðarbæ um kaup sveitarfélagsins á Skessunni verður FH sjálfbært íþróttafélag, sem starfar við fyrsta flokks aðstæður í hentugum og hagkvæmum mannvirkjum. Um land allt er það talin ákjósanleg högun að sveitarfélögin eigi íþróttamannvirki og sjái um viðhald þeirra meðan íþróttafélögin beri ábyrgð á daglegum rekstri og starfseminni eins og hún snýr að iðkendum. Mannvirkin í Kaplakrika hafa verið bylting í aðstöðusköpun fyrir FH og iðkendur þess með þeim árangri að FH er í dag eitt sigursælasta íþróttafélag landsins.

Deloitte fengið til að gera tvær skýrslur
Í tilefni af samningaviðræðum FH og Hafnarfjarðarbæjar fékk bærinn endurskoðunarfyrirtækið Deloitte ehf. til að gera tvær skýrslur. Annars vegar var gerð fjármála- og áhrifagreining vegna Skessunnar og hins vegar úttekt á byggingar- og rekstrarkostnaði Skessunnar og meðferð fjármuna hjá FH meðan á framkvæmdunum stóð. Tilgangurinn var að fá raunhæft verðmat á Skessunni og tryggja að góð vinnubrögð hafi verið viðhöfð við framkvæmdina. Gegnsæi ríkir í rekstri FH og Deloitte fékk fullan aðgang að bókhaldi félagsins við vinnslu skýrslunnar. Félagið sýndi mikinn samstarfsvilja gagnvart þessu verkefni. Einnig skal bent á að ársreikningar FH og starfseininga þess eru endurskoðaðir og aðgengilegir sem opinber gögn.

Byggingarkostnaður og verðmat staðfest af Deloitte
Seinni skýrsla Deloitte sýnir að byggingarkostnaður Skessunnar er vel innan skekkjumarka miðað við kostnaðaráætlun eða 2,5-4%.Um kaupverð segir Deloitte í fyrri skýrslunni: „Uppreiknaður raunkostnaður FH við framkvæmdirnar nemur 1.529 m.kr. miðað við verðlag í mars 2024. Telur Deloitte að viðeigandi væri að HFJ myndi horfa til þess kaupverðs, í samræmi við raunkostnað framkvæmdarinnar.“

Raunbyggingarkostnaður hærri en áætlað var
Við þessa umsögn Deloitte er nauðsynlegt að bæta þeim upplýsingum að fyrirtækið dregur frá, í seinni skýrslunni, upphæð raunkostnaðar eignfærðar 127 milljónir króna, sem eru styrkir, afslættir og samstarfssamningar við styrktaraðila félagsins í tengslum við byggingu Skessunnar. FH er ósammála þeirri ráðstöfun Deloitte, enda hefði bygging Skessunnar ekki verið möguleg án þessarar viðleitni velunnara félagsins.

Viðbyggingu vantar inn í raunkostnað
Inni í upphaflegri kostnaðaráætlun var viðbygging upp á 84 fermetra. Niðurstaða Deloitte á raunbyggingarkostnaði Skessunnar miðar við það að engin viðbygging hafi verið í upphaflegri kostnaðaráætlun. Það er rangt þar sem við upprunalega kostnaðaráætlun bættist 216 fermetra stækkun á viðbyggingu. Sé það leiðrétt er raunbyggingarkostnaður Skessunnar 20% hærri en upprunalega var áætlaður. Sú hækkun á sér eðlilegar útskýringar vegna hækkunar á verðlagi yfir það 7 ára tímabil sem það tók að klára framkvæmdina.

Aðkoma Viðars og Jóns Rúnars eðlileg
Í skýrslunum er bent á að formaður félagsins, Viðar Halldórsson, hafi fengið 72,8 milljónir króna fyrir að stýra byggingu knatthússins Skessunnar. Þessar greiðslur voru greiddar yfir 10 ára tímabil, frá 2015 þegar fyrstu teikningar af húsinu voru gerðar þar til 2024 þegar framkvæmdir við húsið kláruðust. Einnig kemur fram að knatthús FH og ytra byrði þeirra eru keypt frá finnska fyrirtækinu Best Hall með milligöngu Jóns Rúnars Halldórssonar, bróður Viðars. Upphæðin sem FH greiddi til Best Hall fyrir ytra byrði og uppsetningu hússins var um fjórðungur byggingarkostnaðar hússins. Báðar staðreyndirnar eru vel þekktar og hafa legið fyrir um árabil. Hagkvæmnissjónarmið réðu för þegar þessi högun var ákveðin af félaginu.

Hagkvæmasta knatthús landsins
Ekkert annað knatthús í fullri stærð á Íslandi hefur verið byggt á jafn hagkvæman hátt og Skessan. Lægsta tilboð sem barst Hafnarfjarðarbæ í húsið á sínum tíma frá öðrum aðilum en FH var að núvirði 200 milljón krónum hærra en núvirtur raunbyggingarkostnaður hússins í bókum félagsins í dag.

Áætlað virði mannvirkja FH og Hauka
Til að finna ákveðið samhengi í virði þessara mannvirkja, þá er áætlað virði knattspyrnumannvirkja á umráðasvæði FH í Kaplakrika í dag er um 3.200 milljónir króna og þar af á félagið sjálft um 2.000 milljónir króna. Til samanburðar má nefna að áætlað virði knattspyrnumannvirkja á umráðasvæði Hauka á Ásvöllum er í dag um 5.000 milljónir króna. Hafnarfjarðarbær á öll þau mannvirki. Þá má bæta við til upplýsinga að iðkendur knattspyrnu í FH eru í dag tæplega 1.200, en hjá Haukum eru þeir liðlega 600.

Niðurlag: Þrekvirki við erfiðar aðstæður
Bygging hinna þriggja knatthúsa FH í Kaplakrika er stærsta einkaframkvæmd íþróttafélags í Íslandssögunni. Mannvirkin voru öll reist af hagkvæmni og litlum efnum, knúin áfram af þrautseigu félagsfólki í sjálfboðastarfi með dyggum stuðningi velunnara og styrktaraðila félagsins. Þar var unnið þrekvirki við efnahagsaðstæður, sem meirihluta byggingartímans voru erfiðar í bæði sveitarfélaginu og þjóðfélaginu. Hafnfirðingar geta verið stoltir af afrakstrinum, enda um einstaka framkvæmd að ræða. Samstarf FH við Hafnarfjarðarbæ í þessu máli hefur verið farsælt og náið og félagið er þakklátt fyrir það bakland sem það hefur í sveitarfélaginu.
Athugasemdir
banner
banner
banner