![Lengjudeildin](/images/leng_150x150.png)
„Þetta er mjög pirrandi tap. Það er óhætt að segja það," sagði Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, eftir 0-1 tap gegn Fjölni í Lengjudeildinni í kvöld.
„Ég held að allir sem voru á vellinum í dag hafi séð að þetta eru ekki sanngjörn úrslit. Það er þreytt tugga að mæta sem þjálfari tapliðs og segja það, en ég... þær skora fínt mark í byrjun en svo erum við með leikinn næstu 85 mínúturnar. Það er með ólíkindum að við skorum ekki."

Lestu um leikinn: Afturelding 0 - 1 Fjölnir
„Þeir verjast vel en við fengum samt færi til að skora. Ég er ánægður með viljann hjá strákunum. Þetta er ógeðslega, ógeðslega pirrandi."
Afturelding hefur ekki byrjað mótið eins og þeir ætluðu sér, en liðið er með ellefu stig í sjöunda sæti.
„Ef við höldum áfram að spila svona, þá er ég sannfærður um að sigurleikirnir muni koma. Það er smá stífla fyrir framan markið og það er gamla góða tómatsósan, þegar það fer að sullast úr þá kemur hellingur. Við þurfum að halda áfram og hafa trú á því sem við erum að gera."
„Það þýðir ekkert að horfa í stöðuna núna. Það eru búnar níu umferðir af 22 og mótið er ekki einu sinni hálfnað. Við þurfum að ná í sigra, ná í fleiri stig. Ég er ósáttur við stigafjöldann, en að sama skapi veit ég að það býr meira í okkur. Ég horfi í það að reyna að berja strákunum trú um það að stigin muni koma. Ef við spilum svona er ég sannfærður um að við fáum helling að stigum í viðbót," sagði Maggi.
Allt viðtalið er í spilaranum hér fyrir ofan.
Athugasemdir