„Við reyndum okkar ítrasta að njóta þess að spila í dag og vorum að reyna ýmsa hluti sem margt gékk alveg ágætlega og annað ekki. Heilt yfir létum við okkur líða vel" sagði Kristján Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar eftir 0-4 tapið á Hlíðarenda í dag.
Lestu um leikinn: Valur 4 - 0 Stjarnan
„Við vorum alveg þokkalega sátt í hálfleik, margt að því sem við lögðum upp með og ætluðum að fara með inn í leikinn var að ganga en ekki allt saman. Fyrst og fremst ætluðum við hver og einn vel frá leiknum hver og einn einstaklingur, það gékk ágætlega í fyrri hálfleik en aðeins daprara í seinni. Við bara nutum þess að vera hérna þetta var bara gaman."
Stjarnan skapaði sér ekki mikið sóknarlega og vantaði mikið upp á síðasta þriðjunginn hjá liðinu í dag.
„Já það gerði það en við svo sem bjuggumst ekkert við því fyrir leikinn að fá mörg færi eða komast oft fram en þetta snérist kannski meira um varnarleik í dag."
Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.