Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði eitt í stórsigri Al-Qadisiya gegn Al-Ula í efstu deild í Sádi-Arabíu í gær.
Al-Qadisiya vann 5-1 sigur á heimavelli og er komið með sjö stig eftir fimm fyrstu umferðir tímabilsins.
Sara Björk er 34 ára gömul og lék með Juventus í efstu deild ítalska boltans á síðustu leiktíð en skipti yfir til Sádi-Arabíu í sumar.
Hún er komin með tvö mörk á upphafi tímabils en í gær skoraði hún úr vítaspyrnu snemma í síðari hálfleik.
Stórveldi Al-Ahli, Al-Nassr og Al-Hilal verma þrjú efstu sæti deildarinnar á upphafi tímabils.
Athugasemdir