U19 tekur á móti Moldóvu
Tvö íslensk karlalandslið mæta til leiks í dag þar sem A-landsliðið heimsækir Svartfjallaland í fimmtu umferð Þjóðadeildarinnar.
Strákarnir okkar þurfa helst sigur til að eiga möguleika á að knýja fram úrslitaleik við Wales um 2. sæti riðilsins.
Ísland er aðeins með fjögur stig eftir fjórar umferðir þar sem Strákarnir töpuðu í tvígang gegn toppliði Tyrklands, en þeir sigruðu fyrri leikinn gegn Svartfellingum 2-0 á Laugardalsvelli.
Svartfellingar eru án stiga en hafa tapað öllum leikjum sínum með litlum mun.
Þá mæta strákarnir í U19 landsliðinu einnig til leiks. Þeir eiga heimaleik við Moldóvu í undankeppni fyrir EM á næsta ári.
Ísland mætir Moldóvu í 2. umferð undanriðilsins eftir góðan sigur gegn Aserbaídsjan í fyrstu umferð.
Leikir dagsins:
12:00 Ísland U19 - Moldóva U19
17:00 Svartfjallaland - Ísland
Athugasemdir