Liverpool reynir við Pedro næsta sumar - PSG til í að opna veskið fyrir Isak - Nico Williams eftirsóttur
   fim 28. mars 2024 08:54
Brynjar Ingi Erluson
KSÍ opinberar nýjar landsliðstreyjur - „Innblásin af jöklum og eldfjöllum Íslands“
Icelandair
Treyjurnar líta ansi vel út
Treyjurnar líta ansi vel út
Mynd: KSÍ
Knattspyrnusamband Íslands opinberaði í dag nýjar landsliðstreyjur sem verða notaðar næstu tvö árin í það minnsta.

Keppnistreyjan sjálf (authentic version), sem leikmenn klæðast í leikjum með landsliðinu, er sköpuð með hinni nýju og framsæknu tækni PUMA – ULTRAWEAVE. Fislétt og sérunnið efnið í treyjunni gerir hana að léttustu landsliðstreyju í sögu PUMA.

Treyjan sem fer í almenna sölu (replica jersey) er hönnuð og sniðin með RE:FIBRE tækni PUMA. Með RE:FIBRE er lögð áhersla á að vinna gegn sóun með því að endurnýta og endurvinna fataefni sem þegar hefur verið unnið með til að skapa nýtt efni til vinnslu. Hið endurunna efni er hægt að endurnýta aftur og aftur án þess að það tapi gæðum – sem gerir RE:FIBRE að sannri langtímalausn með því að endurvinna fataefni sem hefði annars verið fargað. Þetta er því umhverfisvænasta landsliðstreyja í sögu KSÍ.

Heimatreyjan (bláa) er innblásin af jöklum Íslands, sem þekja 11% landsins. Útitreyjan (ljósgráa) með öskugráum grunnlit og rauðum eldglæringum, er innblásin af eldfjöllum Íslands.

Fyrsti leikur landsliðanna okkar í nýju treyjunni verður á Kópavogsvelli þann 5. apríl þegar A landslið kvenna tekur á móti Póllandi í undankeppni EM 2025.

Treyjurnar eru fáanlegar nú þegar á fyririsland.is og væntanlegar í betri sportvöruverslanir mjög fljótlega.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner