Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 28. september 2021 14:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimild: Vísir 
Spila á Meistaravöllum ef óleikfært verður á Ísafirði
Af æfingu Vestra í gær.
Af æfingu Vestra í gær.
Mynd: Jón Hálfdán Pétursson / Vestri
Samúel Samúelsson, meðstjórnandi knattspyrnudeildar Vestra, sagði við Fótbolta.net í gær að ákvörðun varðandi leikstað í leik Vestra gegn Víkingi verði tekin á fimmtudagskvöld.

Liðin eiga að mætast á Olísvellinum á Ísafirði á laugardag í undanúrslitum Mjólkurbikarsins en óvíst er hvort völlurinn verði leikfær. Samúel greindi frá því að Kaplakrikavöllur yrði líklegast varavöllur ef ekki yrði hægt að spila á Ísafirði.

Ekkert verður úr því að leikurinn fari fram á Kaplakrikavelli en Samúel greinir frá því í samtali við Vísi í dag að Meistaravellir, heimavöllur KR, verði varavöllur. Vestri vill spila á grasvelli.

„Við vorum mest hræddir um að það yrði það mikil rigning á föstudag og laugardag að Olísvöllurinn yrði á floti. Nú á að vera þurrt á miðvikudag og fimmtudag, og á laugardag líka, sem gefur okkur smá bjartsýni."

„Við þurfum að gefa svar á fimmtudagskvöld um hvort við teljum að leikurinn geti farið fram á Ísafirði eða ekki."

„Ég geri svo ráð fyrir því að ef að við teljum að leikurinn geti farið hér fram þá muni KSÍ fá mann til að taka völlinn út. Lokaákvörðunin er ekki okkar en við gerum það sem við getum svo hægt verði að spila hérna,"
sagði Samúel við Vísi.

Samúel segir þá að leikmenn Vestra muni æfa í Borgarnesi á morgun og á fimmtudag.

Á föstudag heldur hópurinn svo annað hvort heim á Ísafjörð eða til Reykjavíkur og æfir á leikstað fyrir leikinn mikilvæga.
Athugasemdir
banner
banner
banner