Gummi og Steinke settust niður í dag og fóru yfir fjórðu umferðina í ensku úrvalsdeildinni í hlaðvarpinu Enski boltinn.
Það var margt áhugavert sem átti sér stað í umferðinni sem var um helgina.
Man Utd er hægt og rólega að hrökkva í gang, Liverpool svaraði með flugeldasýningu, Brighton er á flugi, Chelsea vann einum færri, Haaland í stuði, Nallarar í skýjunum, Tottenham er vél sem mallar og Gerrard verður fyrst rekinn.
Þetta og margt fleira í þætti dagsins. Það var jafnframt boðið upp á óvænt verkefni sem þáttastjórnanda datt í hug rétt áður en farið var í upptöku.

Þátturinn er í boði White Fox, en það er bara fyrir 18 ára og eldri. Munið það.
Þáttinn má nálgast í spilaranum hér að ofan og í öllum hlaðvarpsveitum.
Athugasemdir