Asensio á leið til Villa - Tottenham vill annan miðvörð - Bailey orðaður við Man Utd
   sun 02. febrúar 2025 15:04
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Yamal minnti á Messi í naumum sigri Barcelona
Lamine Yamal sýndi flotta takta í leiknum
Lamine Yamal sýndi flotta takta í leiknum
Mynd: EPA
Barcelona 1 - 0 Alaves
1-0 Robert Lewandowski ('61 )

Spænska stórliðið Barcelona marði 1-0 sigur á Deportivo Alaves í La Liga í dag.

Börsungar héldu í boltann stærstan hluta leiksins en voru í mesta basli með að brjóta vörn Alaves á bak aftur.

Hinn 17 ára gamli Lamine Yamal átti flottasta augnablik leiksins er hann sólaði hálft lið Alaves áður en hann sendi boltann út á vinstri vænginn. Minnti svolítið á Lionel Messi, sem var vanur að gera þetta reglulega hér árum áður.

Það var ekki fyrr en í síðari hálfleiknum sem Börsungar settu aðeins meira púður í hlutina og uppskáru loks sigurmark er Robert Lewandowski hirti frákast í teignum og skoraði.

Heimamenn létu sér nægja eitt mark og eru áfram í 3. sæti með 45 stig, fjórum stigum frá toppliði Real Madrid þegar 22 umferðir hafa verið leiknar.


Athugasemdir
banner
banner
banner