Magnús Orri Schram, nýr formaður knattspyrnudeildar KR, er gestur útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 á morgun. Þátturinn er milli 12 og 14 eins og venja er á laugardögum.
Í fyrri hluta þáttarins munu Tómas Þór og Elvar Geir hita upp fyrir komandi umferð í Bestu deildinni og ræða fréttir vikunnar.
Meiðsli Arons Elísar Þrándarsonar, leikbann Arons Sigurðarsonar, umræða um marklínutækni í Bestu deildinni, KA að styrkja sig, Fantasy deildin og fleira er til umræðu.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.
Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.
Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna
Athugasemdir