Fótboltakonan Svava Rós Guðmundsdóttir er ólétt en hún greinir frá þessu á Instagram.
„Komin hálfa leið með strákunum mínum," skrifar Svava í færslu og birtir skemmtilega mynd með.
„Komin hálfa leið með strákunum mínum," skrifar Svava í færslu og birtir skemmtilega mynd með.
Svava, sem er 29 ára gömul, er á mála hjá Gotham í Bandaríkjunum. Hún hefur ekki spilað fótbolta lengi vegna afar erfiðra meiðsla.
Svava hefur einnig leikið með Val, Breiðabliki, Röa, Kristianstad, Bordeaux, Brann og Benfica á sínum ferli.
Hún á að baki 47 landsleiki og hefur skorað í þeim tvö mörk.
Fótbolti.net óskar Svövu Rós og fjölskyldu til hamingju með þessi tíðindi.
Hér fyrir neðan má sjá myndina sem hún birti.
Athugasemdir