Einungis fjórar UEFA þjóðir sem ekki eru með VAR
Á stjórnarfundi KSÍ sem fram fór 23. október hélt Þóroddur Hjaltalín, starfsmaður dómaramála hjá KSÍ, kynningu á stöðu mála hjá VAR innan aðildarlanda UEFA.
„Kynnti mögulegar útfærslur á VAR fyrir Ísland og fór yfir tæknileg skilyrði fyrir innleiðingu VAR, mönnun leikja og mögulegan kostnað," segir í fundargerð.
„Kynnti mögulegar útfærslur á VAR fyrir Ísland og fór yfir tæknileg skilyrði fyrir innleiðingu VAR, mönnun leikja og mögulegan kostnað," segir í fundargerð.
Fundað með tveimur erlendum fyrirtækjum
Þar kemur einnig fram að KSÍ hafi nú þegar fundað með tveimur erlendum fyrirtækjum varðandi VAR lausnir fyrir Ísland.
„KSÍ hefur verið í góðum tengslum við bæði UEFA og FIFA vegna VAR mála, íslenskir dómarar hafa sótt VAR þjálfun, og jafnframt hefur KSÍ nú þegar fundað, án skuldbindinga, með tveimur erlendum fyrirtækjum sem geta boðið VAR lausnir fyrir Ísland. Árið 2020 höfðu 24 UEFA þjóðir innleitt VAR, og árið 2025 mun 41 UEFA þjóð annað hvort þegar hafa innleitt VAR eða hafið innleiðingarferlið. Þá verða aðeins 4 UEFA þjóðir eftir og er Ísland þar á meðal."
„Stjórn KSÍ samþykkti að fela dómaranefnd til að rýna kostnað og hagnýt atriði við mögulega innleiðingu VAR, og koma með tillögur til stjórnar að næstu skrefum. Jafnframt varvákveðið að VAR verði til umfjöllunar á málþingi daginn fyrir ársþing KSÍ 2025."
Athugasemdir