Rashford gæti farið frá Man Utd í janúar - Davies hefur áhuga á að fara til Liverpool - Fer Kobel til Chelsea?
   fim 22. ágúst 2024 09:40
Elvar Geir Magnússon
KR þarf að mæta HK - Áfrýjunardómstóllinn hafnaði kröfu um að fá dæmdan sigur
Stuðningsmenn HK.
Stuðningsmenn HK.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Páll Kristjánsson, formaður KR.
Páll Kristjánsson, formaður KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Úr leik KR og HK fyrr í sumar.
Úr leik KR og HK fyrr í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK og KR mætast í miklum fallbaráttuslag í Bestu deild karla í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 20 í Kórnum.

KR hafði reynt að fá dæmdan 3-0 sigur en nú hefur Áfrýjunardómstóll KSÍ staðfest úrskurð um að hafna kröfu félagsins. KR-ingar þurfa því að spila leikinn við HK-inga í kvöld.

Eins og flestir lesendur vita áttu liðin upphaflega að leika þann 8. ágúst en dómarinn frestaði leiknum þar sem stöngin á öðru markinu var brotin. Mótanefnd KSÍ setti þá leikinn á í dag, 22. ágúst.

KR kærði en tapaði málinu fyrir aga- og úrskurðarnefnd. Félagið áfrýjaði þá til áfrýjunarnefndarinnar sem staðfesti fyrri úrskurð.

Af heimasíðu KSÍ:
Áfrýjunardómstóll KSÍ hefur kveðið upp dóm í máli nr. 2/2024. Hefur dómstóllinn staðfest hinn áfrýjaða úrskurð aga- og úrskurðarnefndar í máli nr. 8/2024 um að hafna kröfu KR um að félaginu verði dæmdur 0-3 sigur í leik liðsins við HK í Bestu deild karla. Staðfesti dómurinn þannig einnig niðurstöðu aga- og úrskurðarnefndar um að hafna kröfu KR um ómerkingu á ákvörðun mótanefndar KSÍ að finna leik HK og KR nýjan leiktíma.

Úr dómsniðurstöðu í máli nr. 2/2024:
[…] Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ hefur lögsögu yfir þeim málefnum, sem koma upp innan vébanda Knattspyrnusambands Íslands og varða lög og reglur þess eftir því sem við á. Skal nefndin byggja niðurstöður sínar á lögum og reglugerðum KSÍ, sbr. grein 2.1 reglugerðar KSÍ um aga- og úrskurðarmál. Í reglugerð KSÍ um áfrýjunardómstól KSÍ segir í grein 2.1 að áfrýjunardómstóll KSÍ skuli byggja niðurstöður sínar á lögum og reglugerðum KSÍ. Með vísan til fyrrgreindra ákvæða liggur fyrir að aga- og úrskurðarnefnd og áfrýjunardómstóll KSÍ eru bundin af ákvæðum laga og reglugerða KSÍ í úrlausnum sínum. Tekur dómurinn undir sjónarmið í hinum áfrýjaða úrskurði að viðhlítandi viðurlagaheimild þurfi að liggja til grundvallar því að úrslitum leiks sé breytt. Að mati dómsins liggur ekki fyrir viðhlítandi lagastoð til að verða við kröfu áfrýjanda enda verði aðstæður, sem upp komu í aðdraganda fyrirhugaðs leiks HK og KR þann 8. ágúst, ekki heimfærðar á skýra og ótvíræða heimild til að dæma um úrslit leiks. Er aðalkröfu áfrýjanda um að KR verði dæmdur 0-3 sigur í leik liðsins við HK því hafnað.

[…] Að mati dómsins liggur ljóst fyrir að dómari fyrirhugaðs leiks HK og KR þann 8. ágúst tók ákvörðun um fresta leiknum og bera gögn málsins það skýrlega með sér að ófullnægjandi vallaraðstæður hafi valdið því. Nánar tiltekið hafi markstöng á öðru marki í Kórnum reynst brotin og hafi starfsfólki vallarins ekki tekist að bæta úr því. Að mati dómsins er niðurlag greinar 15.6 skýrt og afdráttarlaust um hver afdrif leiks, sem farist hefur fyrir og ekki verið flautaður á, skuli vera. Samkvæmt skýru orðalagi ákvæðisins hafi það legið fyrir mótanefnd KSÍ að taka ákvörðun um afdrif leiksins enda falli það innan ákvörðunvalds nefndarinnar að taka m.a. ákvörðun um niðurröðun leikja og taka ákvörðun um hvenær frestaðir leikir skuli settir á að nýju, sbr. einnig 4. grein starfsreglna nefndarinnar. Samkvæmt orðanna hljóðan skal við þær aðstæður þegar leikur hefur farist fyrir áður en hann var flautaður á, leikurinn fara fram næsta dag sem fær þykir og við verður komið, sbr. niðurlagi greinar 15.6. Telur dómurinn því liggja fyrir að mótanefnd KSÍ hafi verið tækt með vísan til greinar 15.6 að finna leik HK og KR nýjan leikdag þann 22. ágúst nk., enda hafi sú ákvörðun fyllilega rúmast innan þess valdsviðs sem nefndinni er sett skv. lögum og reglugerðum KSÍ. Er kröfu áfrýjanda, um að ákvörðun mótanefndar KSÍ að finna leiknum nýjan leiktíma verði ómerkt, því hafnað.

[…] Með vísan til forsendna í hinum kærða úrskurði aga- og úrskurðarnefndar er kröfu áfrýjanda um að meðan mál þetta er til lykta leitt verði leik HK og KR í Bestu deild karla, sem settur hefur verið á 22. ágúst frestað, vísað frá.

Dómurinn hafnar varakröfu áfrýjanda um að úrskurður aga- og úrskurðarnefndar verði felldur úr gildi og nefndinni verði gert að taka málið til efnislegrar meðferðar en áfrýjandi rökstyður þá kröfu sína ekki frekar í áfrýjun sinni. Að mati dómsins liggur fyrir að aga- og úrskurðarnefnd tók málið til efnislegrar meðferðar eins og fyrirliggjandi úrskurður nefndarinnar í máli nr. 8/2024 ber skýrlega með sér.


Dómurinn í heild sinni
Besta-deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 22 15 4 3 56 - 23 +33 49
2.    Breiðablik 22 15 4 3 53 - 28 +25 49
3.    Valur 22 11 5 6 53 - 33 +20 38
4.    ÍA 22 10 4 8 41 - 31 +10 34
5.    Stjarnan 22 10 4 8 40 - 35 +5 34
6.    FH 22 9 6 7 39 - 38 +1 33
7.    Fram 22 7 6 9 31 - 32 -1 27
8.    KA 22 7 6 9 32 - 38 -6 27
9.    KR 22 5 6 11 35 - 46 -11 21
10.    HK 22 6 2 14 26 - 56 -30 20
11.    Vestri 22 4 6 12 22 - 43 -21 18
12.    Fylkir 22 4 5 13 26 - 51 -25 17
Athugasemdir
banner
banner
banner