Fjolla Shala, leikmaður Breiðabliks í Pepsi-deild kvenna, hefur ekki haft heppnina með sér í liði á þessari leiktíð. Fyrir Íslandsmót tvíkjálkabrotnaði hún í úrslitaleik Lengjubikarsins.
Hún var að spila sinn fyrsta byrjunarliðsleik eftir meiðslin á sunnudag þegar Breiðablik burstaði KR 5-1 á útivelli.
Hún var að spila sinn fyrsta byrjunarliðsleik eftir meiðslin á sunnudag þegar Breiðablik burstaði KR 5-1 á útivelli.
Eftir samstuð á 25. mínútu leiksins féll leikmaður KR ofan á Fjollu með þeim afleiðingum að hún hryggbrotnað.
Hún var flutt í burtu með sjúkrabíl en síðar kom í ljós brot í hryggnum.
Læknar telja að hún muni ekki spila meira í sumar en sjálf er Fjolla harðákveðin í að koma aftur við sögu áður en Íslandsmótinu lýkur. Breiðablik er tveimur stigum frá toppsæti deildarinnar.
Athugasemdir