Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 29. desember 2020 21:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heildarniðurstaða í vali á íþróttamanni, þjálfara og liði ársins
Glódís Perla Viggósdóttir.
Glódís Perla Viggósdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingibjörg Sigurðardóttir hafnaði í áttunda sæti.
Ingibjörg Sigurðardóttir hafnaði í áttunda sæti.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gylfi Þór Sigurðsson var í níunda sæti. Aron Einar Gunnarsson fékk líka atkvæði.
Gylfi Þór Sigurðsson var í níunda sæti. Aron Einar Gunnarsson fékk líka atkvæði.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sara Björk Gunnarsdóttir var valin íþróttamaður ársins 2020, Elísabet Gunnarsdóttir þjálfari ársins og kvennalandsliðið var valið lið ársins. Tilkynnt var um þetta í kvöld.

Hér að neðan má sjá hvernig öll stigin voru í þessum flokkum. Það voru 30 meðlimir í Samtökum íþróttafréttamanna sem kusu.

Íþróttamaður ársins 2020
1. Sara Björk Gunnarsdóttir, fótbolti – 600
2. Martin Hermannsson, körfubolti – 356
3. Aron Pálmarsson, handbolti – 266
4. Anton Sveinn McKee, sund – 209
5. Bjarki Már Elísson, handbolti – 155
6. Glódís Perla Viggósdóttir, fótbolti – 126
7. Guðni Valur Guðnason, frjálsíþróttir – 106
8. Ingibjörg Sigurðardóttir, fótbolti – 84
9. Gylfi Þór Sigurðsson, fótbolti – 74
10. Tryggvi Snær Hlinason, körfubolti – 66

---------------------------------------------------

11. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, golf – 47
12. Júlían J.K. Jóhannsson, kraftlyftingar – 23
13. Hilmar Örn Jónsson, frjálsíþróttir – 15
14. Alfons Sampsted, fótbolti – 10
15. Ásdís Hjálmsdóttir, frjálsíþróttir – 8
16-17. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, golf – 7
16-17. Guðlaug Edda Hannesdóttir, þríþraut – 7
18. Berglind Björg Þorvaldsdóttir, fótbolti – 6
19-21. Ísak Bergmann Jóhannesson fótbolti – 5
19-21. Hlynur Andrésson, frjálsíþróttir – 5
19-21. Steinunn Björnsdóttir, handbolti – 5
22.-23. Vigdís Jónsdóttir, frjálsíþróttir – 4
22.-23. Sveindís Jane Jónsdóttir, fótbolti – 4
24.-25. Hilmar Snær Örvarsson, íþróttum fatlaðra – 1
24.-25. Aron Einar Gunnarsson, fótbolti – 1

Þjálfari ársins
1. Elísabet Gunnarsdóttir, fótbolti – 133
2. Arnar Þór Viðarsson, fótbolti – 55
3. Heimir Guðjónsson, fótbolti – 23*

---------------------------

4. Þorsteinn Halldórsson, fótbolti – 23
5. Þórir Hergeirsson, handbolti – 20
6. Guðrún Ósk Ámundadóttir, körfubolti – 14
7. Jón Þór Hauksson, fótbolti – 6
8. Stefán Arnarson, handbolti – 1

*Heimir var í 1. sæti á fleiri atkvæðaseðlum en Þorsteinn og var því á topp 3 listanum, skv. reglum kjörsins.

Lið ársins
1. Kvennalandslið Íslands í fótbolta – 148
2. 21 árs landslið Íslands í fótbolta – 84
3. Kvennalið Breiðabliks í fótbolta – 14

---------------------

4. Kvennalið Fram í handbolta – 9
5.-6. Kvennalið Skallagríms í körfubolta – 7
5.-6. Karlalið Vals í fótbolta – 7
7. Karlalandslið Íslands í handbolta - 1

Sjá einnig:
Elísabet er þjálfari ársins
Kvennalandsliðið er lið ársins
Sara Björk íþróttamaður ársins 2020 með fullt hús stiga
Konur unnu öll verðlaunin - „Þetta er kvennaárið"
Athugasemdir
banner