Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
banner
   fim 16. ágúst 2018 13:30
Magnús Már Einarsson
Steini Halldórs: Hræðumst ekki neitt
Úrslitaleikur Mjólkurbikarsins á morgun
Þorsteinn Halldórsson.
Þorsteinn Halldórsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Okkur hlakkar mikið til og þetta verður skemmtilegt verkefni," segir Þorsteinn Halldórsson, þjálfari Breiðabliks, um leikinn gegn Stjörnunni í úrslitum Borgunarbikars kvenna annað kvöld klukkan 19:15.

Smelltu hér til að kaupa miða á leikinn

„Stjarnan er með gríðarlega sterkt sóknarlið og við þurfum að standa vaktina þar og spila agaðan leik. Við þurfum síðan að reyna að opna þær og skora á móti þeim."

„Stjörnuliðið er vel mannað í öllum stöðum og er eitt besta liðið á landinu. Þetta er erfitt verkefni en skemmtilegt. Við hræðumst ekki neitt og mætum tilbúin og stefnum á að vinna."


Breiðablik varð bikarmeistari fyrir tveimur árum og Þorsteinn vonast eftir svipaðri stemningu í stúkunni annað kvöld.

„Það var góð stemning hérna fyrir tveimur árum og ég á ekki von á öðru en að fólk fjölmenni. Breiðablik er stórt félag og samkvæmt því ætti það að vera stærsti stuðningsmannahópurinn. Ég á von á því að það verði fjölmennt"

Sólveig Jóhannesdóttir Larsen er meidd og verður ekki með á morgun auk þess sem Sam Lofton er tæp vegna meiðsla.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner