Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 18. nóvember 2022 13:15
Elvar Geir Magnússon
Liðið sem Eto'o spáir sigri á HM gerði jafntefli við Panama
Mynd: Getty Images
Kamerún og Panama gerðu 1-1 jafntefli í vináttulandsleik í dag en leikið var í Abú Dabí.

Kamerún verður með á HM og er í riðli með Brasilíu, Serbíu og Sviss. Samuel Eto'o vakti athygli þegar hann spáði kamerúnska liðinu sigri á mótinu en ljóst er að til að sú spá rætist þarf liðið að spila betur en það gerði gegn Panama.

Eric Maxim Choupo-Moting, framherji Bayern München, skoraði eina mark Kamerún snemma í seinni hálfleik en ekki mörgum mínútum síðar jafnaði Michael Murillo.

Sjá einnig:
Eto'o að öllum líkindum með gölnustu spána fyrir HM


Athugasemdir
banner
banner
banner