Roma vill Casemiro - Napoli og Juventus fylgjast með Höjlund - Úlfarnir búast við tilboðum í Cunha
Hugurinn leitaði heim eftir góð ár í Árbæ - „Var svolítið ákveðin"
Norðurálsmótið 40 ára í sumar
Kári Árna: Týndu synirnir eru komnir aftur heim
Viktor Bjarki aðstoðar Sölva: Verið draumur mjög lengi
Sölvi fengið góðan skóla og stígur nú í stóra skó - „Búinn að heilaþvo mann síðustu sex árin"
Endurnýjar kynnin við Arnar - „Vona að hann hafi lært eitthvað"
Arnar í draumastarfið: Ótrúlega ljúft en að sama skapi smá sorg
Eyþór með skýr markmið í nýju liði - „Þetta er bara mín vinna"
Atli Þór í skýjunum: Víkingur var eina liðið sem ég hafði auga á
Alex er kominn heim: Mig langaði að fara í bláu treyjuna aftur
Benoný stýrði víkingaklappinu með stuðningsmönnum eftir fyrsta leikinn sinn
Stígur út úr þægindarrammanum og fer norður - „Nú fer ég og kíki í mat til hennar"
Hákon segir allt risastórt hjá Lille - „Vinur minn vill að ég taki Nunez treyjuna"
Glódís Perla: Ótrúlega dýrmætt og mun aldrei gleyma því
Kominn heim eftir dvöl í Portúgal og á Ítalíu - „Er enn með stóra drauma"
Ekki erfitt að segja tengdapabba frá ákvörðuninni - „Tími til þess að breyta til"
Frétti á Instagram að hann yrði ekki áfram í Kanada - „Eins og er, þá er það ekki planið"
Sjáðu mörkin úr leik Fram og KR
Valdimar Þór: Smá einbeitingarleysi sem er stórhættulegt í þessari keppni
Glímir við sama vandamál og Guardiola - „Hvenær endar lærdómurinn?"
   mán 23. ágúst 2021 21:29
Brynjar Ingi Erluson
Brynjar Björn: Löngu hættur að treysta á að dómararnir gefi okkur eitthvað
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
„Þetta var erfiður leikur fyrir bæði lið sýndist mér. Fyrir okkar parta þá náðum við ekki að skapa nógu mikið af góðum færum og þegar líða tók á leikinn þá náðum við ekki koma boltanum fyrir og náðum ekki skoti eða slútta okkar aðgerðum," sagði Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK, eftir markalausa jafnteflið gegn Leikni R. í Pepsi Max-deildinni í kvöld.

Lestu um leikinn: Leiknir R. 0 -  0 HK

HK-ingar voru líklegri til að stela sigrinum í síðari hálfleik en það virtist þó vanta gæði upp á til að ná í stigin þrjú.

Liðið er í bullandi fallbaráttu þegar fjórir leikir eru eftir. HK-ingar eru með 14 stig í næst neðsta sæti.

„Við verðum að líta líka á björtu hliðarnar. Við héldum hreinu, vörðumst ágætlega og vorum kannski aðeins of passífir í fyrri hálfleik en aggresífari og áræðnari í síðari hálfleik."

„Vindurinn spilaði inn í og völlurinn var góður reyndar en laus í sér og menn voru að renna á hausinn stundum á erfiðum augnablikum þegar við þurftum á því að halda. Það var spenna og pressa sem spilaði líka inn í og það þarf ekki að taka það úr jöfnunni, þetta er hluti af þessu."


HK-ingar vildu fá vítaspyrnu þegar Jón Arnar Barðdal féll í teignum á 55. mínútu en ekkert var dæmt.

„Mér finnst alveg vera hægt að dæma víti á það. Hann fer fram fyrir varnarmanninn og fyrstur í boltann, varnarmaðurinn fer aftan í hann. Það er svekkjandi en ég er löngu hættur að treysta á það að dómararnir gefi okkur eitthvað," sagði Brynjar um atvikið.

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner