„Mjög mikilvægur sigur. Þetta var stórleikur og við höfum sýnt að við erum góðir að vinna þá leiki." voru fyrstu viðbrögð Sigurðs Höskuldssonar þjálfara Leiknis.
Lestu um leikinn: Leiknir R. 2 - 0 ÍA
Leiknismenn halda hreinu og Sævar Atli Heldur áfram að skora og Mango Escobar sem þurfti virkilega að komast á blað og var þetta fullkomið kvöld fyrir Leiknismenn.
„Að mörgu leyti var það það þó ég hefði viljað sjá örlítið betri spilamennsku að þá var þetta virkilega ánægjulegt."
Leiknismenn hafa fengið 13 af sínum 14 stigum á heimavelli og er Domusnovavöllurinn að verða einn erfiðasti útivöllur landsins.
„Það var stefnan að gera það og þessi völlur á að vera það og ef við náum að halda þessu svona þá erum við í góðum málum."
Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan
Athugasemdir