Juventus segir nei við Rashford - Stærstu félögin á Englandi vilja Musiala - Olmo gæti farið frítt frá Barcelona
banner
fimmtudagur 19. desember
Sambandsdeildin
mánudagur 2. desember
Vináttulandsleikur
föstudagur 29. nóvember
fimmtudagur 28. nóvember
Sambandsdeildin
þriðjudagur 19. nóvember
Þjóðadeildin
sunnudagur 17. nóvember
U21 - Vináttuleikur
laugardagur 16. nóvember
Þjóðadeildin
U19 karla - Undank. EM 2025
fimmtudagur 7. nóvember
Sambandsdeildin
þriðjudagur 5. nóvember
Undankeppni EM U17
sunnudagur 27. október
Besta-deild karla - Efri hluti
fimmtudagur 24. október
Vináttulandsleikur
Sambandsdeildin
sunnudagur 20. október
Besta-deild karla - Neðri hluti
laugardagur 19. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
þriðjudagur 15. október
Landslið karla - U21 - Undankeppni EM
mánudagur 14. október
Landslið karla - Þjóðadeild
föstudagur 11. október
fimmtudagur 10. október
Undankeppni EM U21 karla
sunnudagur 6. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
laugardagur 5. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
fimmtudagur 3. október
Sambandsdeild Evrópu
mánudagur 30. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 29. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
föstudagur 27. september
Fótbolti.net bikarinn
miðvikudagur 25. september
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
mánudagur 23. september
Besta-deild karla - Efri hluti
Lengjudeildin - Umspil
sunnudagur 22. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Lengjudeildin - Umspil
laugardagur 21. september
Mjólkurbikarinn - Úrslit
Fótbolti.net bikarinn
föstudagur 20. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
fimmtudagur 19. september
Lengjudeild karla - Umspil
miðvikudagur 18. september
Lengjudeildin - Umspil
mánudagur 16. september
Besta-deild karla
föstudagur 13. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Besta-deild karla
fimmtudagur 12. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
þriðjudagur 10. september
Undankeppni EM U21
Æfingamót í Slóveníu
mánudagur 9. september
Þjóðadeildin
laugardagur 7. september
Meistaradeild kvenna - forkeppni
Lengjudeild karla
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Lengjudeild kvenna
sunnudagur 29. desember
Engin úrslit úr leikjum í dag
mið 26.apr 2023 23:30 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá þjálfara og fyrirliða fyrir Lengjudeildina: 11. sæti

Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í Lengjudeildinni í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla fyrirliða og þjálfara í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði.

Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. ?
11. Þróttur R., 58 stig
12. Ægir, 27 stig

11. Þróttur R.
Þróttarar komnir upp í Lengjudeildina og geta vel komið á óvart í sumar ef þeir ná að spila mikið upp á sína styrkleika, þeir eiga að gefa öllum liðum leik með öguðum varnarleik og vel útfærðum skyndisóknum.



Þjálfarinn: Ian Jeffs er á leið í sitt annað tímabil hjá Þrótti. Hann kom liðinu upp á fyrsta tímabili og núna er verkefnið að halda liðinu uppi í næst efstu deild. Jeffs, sem er fertugur Englendingur, er fyrrum aðstoðarþjálfari íslenska kvennalandsliðsins og var áður en hann tók við Þrótti aðstoðarmaður Helga Sigurðssonar hjá ÍBV. Hann hefur verið á Íslandi frá árinu 2003 þegar hann fyrst gekk í raðir ÍBV.



Styrkleikar: Gríðarlega skipulagt og vel þjálfað lið, eru sterkir varnarlega og leikmenn þekkja sín hlutverk vel, samstilltir og kraftmiklir. Þróttarar verða skipulagðir og skeinuhættir í sumar, eru mjög öflugir í skyndisóknum með eldfljóta leikmenn eins og Izaro Abella, Ernest Slupski, Ágúst Karel og fleiri. Einnig eru þeir að miklu leyti með svipaðan hóp og í fyrra, sterkur kjarni sem hefur spilað saman og náð árangri, þekkja hvorn annan vel.



Veikleikar: Ekki nógu sterkir í að stjórna leikjum með boltann, gætu lent í vandræðum sóknarlega ef lið leggjast aftar og loka svæðum fyrir þeirra eldfljótu menn til að ráðast í. Þeir eru líka ekki með mikla reynslu í liðinu í Lengjudeild, Úkraínumennirnir, Ernest og fleiri lykilmenn hafa ekki spilað þar áður.

Lykilmenn: Miðvörðurinn öflugi Kostiantyn Pikul, sóknarsinnaði miðjumaðurinn Kostiantyn Iaroshenko og fyrirliðinn Sam Hewson. Iaro og Hewson eru gífurlega reynslumiklir og eru mikil gæði í þeim, Hewson var hjá Manchester United í upphafi síns ferils og Iaro var hjá Shakhtar Donetsk.


Iaro er ofboðslega gæðamikill leikmaður

Fylgist með: Ernest Slupski
Eldfljótur og leikinn kantmaður, kom eins og stormsveipur inn í lið Þróttara um mitt mót í fyrra og spilaði stóran þátt í því að koma liðinu upp um deild.


Ernest er spennandi leikmaður

Komnir
Ágúst Karel Magnússon frá Ægi
Jörgen Pettersen frá ÍR
Njörður Þórhallsson frá KV
Óskar Sigþórsson frá ÍH


Þróttur fékk Jörgen frá ÍR í vetur

Farnir
Alex Baker til Ástralíu
Franz Sigurjónsson á láni til KFS
Miroslav Pushkarov til Slóvakíu
Aron Fannar Hreinsson í ÍR (var á láni frá Fjölni)

Líklegt byrjunarlið


Fyrstu þrír leikir Þróttar:
5. maí, Þróttur R. - Leiknir R. (AVIS völlurinn)
11. maí, Fjölnir - Þróttur R. (Extra völlurinn)
21. maí, Þróttur R. - Ægir (AVIS völlurinn)
Athugasemdir
banner